Stjörnuþoka er þyrping fjölmargra stjarna og annarra stjarnfræðilegra fyrirbæra , sem haldast í nágrenni hvert við annað vegna sameiginlegs þyngdarsviðs stjörnuþokunnar. Orðið nágrenni er auðvitað afstætt, og stjörnuþokur eru mjög stórar. Dæmigerðar stjörnuþokur geta verið frá þúsundum til hundraða þúsunda ljósára í þvermál og innihaldið allt frá því um tíu milljónum stjarna, og upp í billjón stjörnur. Í flestum tilvikum er vegalengdin á milli stjörnuþoka talin í milljörðum ljósára, en þó eru til stjörnuþokur sem eru mun nær, og þess eru jafnvel dæmi að tvær stjörnuþokur „rekist saman“. Talið er að finna megi svarthol í miðju allra störnuþoka.