Þegar ljósið frá nýstirninu dofnar að lokum getum við aftur farið að gefa gaum að stjörnugrúanum fram undan. Þú tekur þá eftir því að stjörnur að vísu kringum þig hvert litið er en þó er gífulegur fjöldi þeirra saman kominn í feiknastórum hópum. Þessir hópar eru tvenns konar. Í lausþyrpingum eins og sjöstirninu eru nokkur hundruð stjörnur í óskipulegum hópi. Kúluþyrpingar eru algengari og eru kúlulaga eins og nafnið bendir til. Fjöldi stjarna í slíkri þyrpingu getur skiðt hundruðum þúsunda